Lögreglufélag Reykjavíkur

  • Um félagið
  • Innskráning
  • Leiðbeiningar um nýskráningu

Lesa lögreglublaðið

SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA LÖGREGLUBLAÐIР

© 2017, Lögreglufélag Reykjavíkur

  • Lost your password?

Um félagið

Velkomin(n) á vefsíðu Lögreglufélags Reykjavíkur. Síða þessi er vettvangur lögreglumanna, félagsmanna í Lögreglufélagi Reykjavíkur, til að fræðast um réttindi og kjör, sækja um ýmsa þjónustu eða styrki sem félagið býður félagsmönnum sínu.

Lögreglufélag Reykjavíkur var stofnað 16. Desember 1935. Félagið er fyrir þá lögreglumenn sem starfa á höfuðborgarsvæðinu. Svæðisdeildir LR eru Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu, Ríkislögreglustjórinn og Héraðssaksóknari. Þeir geta eingöngu verið félagsmenn sem eru lögreglumenn. Í félaginu eru um 300 félagsmenn. Hlutverk félagsins er meðal annars að vera tengiliður félagsmanna við stjórn Landssambands Lögreglumanna, standa að og halda utanum trúnaðarmenn svæðisins, gæta að og semja fyrir hönd lögreglumanna um vinnutíma og vaktir þeirra. Stjórn LR móttekur erindi félagsmönnum og leiðbeinir þeim eða aðstoðar úrlausna mála sinna.

Lögreglufélag Reykjavíkur er með aðsetur að Brautarholti 30, en þar rekur það skrifstofur, félagsheimili og nokkur smærri einstaklingsherbergi til útleigu til félagsmanna. Þá heldur félagið úti útivistarsvæði í Heiðmörk, fyrir félagsmenn.

Leiðbeiningar um nýskráningu

  1. Smella á „innskráning“ í hægra horninu á forsíðunni.
  2. Velja „Connect with Facebook“
    • Sért þú ekki með slíkan aðgang þarftu að hafa samband gegnum logreglufelag@logreglufelag.is og senda upplýsingar (nafn, kennitala, lögreglunúmer, netfang) og við búum til aðgang fyrir þig (lengri leiðin)
  3. Því næst skráir þú þig inn með „Facebook skráningunni“ þinni.

 

  1. Velur halda áfram og næst velur þú „Create a new account“
  1. Þar með er það komið. Næsta skref er í höndum vefstjóra, en það er að samþykkja skráningu þína áður en þú kemst á nýjan vef félagsins. Þú færð sendan póst til staðfestingar á það netfang sem notað var við nýskráninguna (facebook netfangið þitt)

Á nýjum vef er ítarlegar upplýsingar um félagið og starf þess, fréttir og skilaboð til félagsmanna, bókunarkerfi um orlofshús LR, félagsheimili LR, skotklúbbinn, heiðmerkurreitinn og fleira. Því hvetjum við alla til þess að ganga frá skráningunni sem fyrst, svo allt sé klárt J

Séu spurningar, eitthvað óljóst, hafið samband gegnum logreglufelag@logreglufelag.is og við svörum eins fljótt og við getum J

 

Kveðja, fyrir hönd stjórnar, GiR